Newsletters

Viltu styðja við sölustarfið okkar?
Star-Oddi er framsækið fyrirtæki á sviði mælitækni fyrir dýra- og umhverfisrannsóknir í hafi og á landi. Flestir viðskiptavinir fyrirtækisins eru erlendir og meðal notenda eru heimsþekktar rannsókna- og vísindastofnanir.
Hlutverk okkar er að bjóða tækni sem gerir vísindaheiminum kleift að rannsaka umhverfisáhrif á dýr og vistkerfi sjávar, allt frá hafsbotni til hæstu fjallatoppa.
Gildin okkar eru áreiðanleiki, metnaður og heiðarleiki og leitumst við við að fylgja þeim í hvívetna í störfum okkar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í stuðningi við starf sölufólks Star-Odda sem eru sérfræðingar á mörkuðum okkar. Í því felst afgreiðsla móttekinna pantana í pantanakerfi okkar, gerð reikninga, gera pantanir klárar fyrir hraðsendingar FedEx og DHL, vinna í viðskiptavinatengslakerfi okkar (CRM) og samskipti við viðskiptavini. Möguleikar á þróun í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun tölvukerfa og tölvuforrita ýmiss konar er skilyrði
- Reynsla af bókhaldskerfum er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Góðir samskiptahæfileikar í ræðu og riti
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
Umsókn með kynningarbréfi og náms- og starfsferilsyfirliti óskast sendar með tölvupósti á [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 19.05.2025. Nánari upplýsingar veitir [email protected] eða í s. 533 6060. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Hægt er líka að sækja um starfið gegnum Alfreð: https://alfred.is/starf/viltu-stydja-vid-soelustarfid-okkar