Newsletters
Viltu taka þátt í sölustarfi á alþjóðlegum mörkuðum?
Viltu taka þátt í sölustarfi á alþjóðlegum mörkuðum?
Star-Oddi leitar að öflugum einstaklingi í fjölbreytt starf þar sem saman fara sölustuðningur, úrvinnsla pantana og sendinga, alþjóðleg viðskiptasamskipti og stafræn markaðssetning.
Star-Oddi er framsækið íslenskt tæknifyrirtæki sem þróar og framleiðir mælitæki fyrir dýra- og umhverfisrannsóknir í hafi og á landi. Viðskiptavinir okkar eru að mestu erlendir og meðal notenda eru leiðandi háskólar, rannsóknastofnanir og fyrirtæki víða um heim.
Við leitum að jákvæðum, skipulögðum og drífandi einstaklingi með góða samskiptahæfileika og áhuga á að styðja við alþjóðlegt sölustarf. Starfið krefst góðra skipulagshæfileika, meðal annars við úrvinnslu pantana og útsendingar til viðskiptavina víða um heim. Reynsla eða áhugi á markaðsmálum og stafrænum miðlum er kostur. Starfið hentar vel fyrir einstakling sem vill læra, taka þátt og hafa áhrif í litlu en alþjóðlegu fyrirtæki.
Gildin okkar eru áreiðanleiki, metnaður og heiðarleiki og leitumst við að fylgja þeim í hvívetna í störfum okkar.